Miðvikudagur, 04. nóvember 2015 16:48 |
 Landsmót í Staðlaðri skammbyssu fer fram í Egilshöllinni á laugardaginn. Skráðir keppendur eru 8 og verða því tveir riðlar. Fyrri riðill hefst kl.10 og seinni kl.11:15. Nánar um röðun á morgun. Keppnisæfing er á föstudegi kl.17:00-18:30
|
|
Sunnudagur, 01. nóvember 2015 18:03 |
Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði á landsmóti STÍ sem haldið var í Digranesi í dag. Skorið var 618,0 stig. Í kvennaflokki varð Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur í öðru sæti með 600,0 stig. Í liðakeppninni í karlaflokki varð A-sveit SR í öðru sæti með 1779,5 stig en auk Guðmundar Helga skipuðu sveitina þeir Þórir Kristinsson (584,5) og Þorsteinn B. Bjarnarson (577,0) Nánar um mótið á heimasíðu STÍ.
|
Laugardagur, 17. október 2015 15:27 |
Fyrsta Landsmót vetrarins í innigreinunum fór fram í dag í Kópavogi. Keppt var í loftskammbyssu og loftriffli. Ásgeir Sigurgeirsson sigraði í loftskammbyssu á mjög góðu skori, 585 stig. Í loftskammbyssu kvenna sigraði Jórunn Harðardóttir með 367 stig. Í unglingaflokki í loftskammbyssu kvenna sigraði Margrét Skowronski á nýju Íslandsmeti. Guðmundur Helgi Christensen sigraði í loftriffli karla. Jórunn Harðardóttir sigraði svo einnig í loftriffli kvenna. Sjá nánar á www.sti.is
|
Föstudagur, 16. október 2015 22:10 |
LOKAÐ er í Egilshöllinni laugardaginn 17.október en opið er á Álfsnesi kl.12-16.
|
Miðvikudagur, 14. október 2015 11:55 |
OPIÐ verður á svæði okkar á Álfsnesi í dag kl. 16 - 18:30
|
Föstudagur, 09. október 2015 08:26 |
Nú er starfið í Egilshöll hafið þennan veturinn. Opið er mánudaga til fimmtudaga kl.19-21 og á laugardögum kl.10-12. Heimsóknir starfsmannahópa utan hefðbundins opnunartíma fara sífellt vaxandi og reynum við að sinna því eftir bestu getu. Fyrirtæki og starfsmannafélög sem hafa áhuga á að koma og prófa sig í skotfimi geta haft samband við félagið með tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og eins má slá á þráðinn til framkvæmdastjóra í síma 893-1231.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 111 112 113 114 115 116 117 118 119 120 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 113 af 295 |