Námskeið
Námskeið í haglabyssu Skoða sem PDF skjal

Skotfélag Reykjavíkur býður uppá námskeið í HAGLABYSSU fyrir byrjendur, sem og lengra komna ! Tímapantanir eru í síma 892-9320. Leiðbeinandi er Gunnar Sigurðsson. Skotfélag Reykjavíkur býður upp á námskeið í skotfimi með haglabyssu. Námskeiðin eru byggð að grunnkennslu í Ólympísku Skeeti, sem er ein vinsælasta keppnisgreinin í landinu. Námskeiðin fara fram á skotsvæði félagsins á Álfsnesi og kennari er hinn margreyndi leiðbeinandi Gunnar Sigurðsson. Námskeiðið er 2,5 klst. í senn og kostar hvert námskeið 10.000 kr. Nemendur greiða einnig fyrir leirdúfur ( hringjaverð, sjá gjaldskrá ) og skot. Nemendur geta einnig fengið leigða byssu ef þess er óskað. Einnig er boðið upp á námskeið sem er 6 tímar, 2 tímar í senn og kostar námskeiðið 25.000 kr. Menn geta slegið sér saman allt að fjórir í hvert námskeið og skiptist þá kostnaðurinn á fjölda þátttakenda námskeiðisins. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja ná betri tökum á íþróttinni Skeet og haglabyssuskotfimi alment svo og þeim sem vilja ná betri árangri við veiðar. Tímapantanir eru hjá Gunnari Sigurðssyni Leiðbeinanda í síma 892-9320. Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Tímasetningar námskeiðana eru í samráði við Gunnar.

AddThis Social Bookmark Button
 


Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir