Þriðjudagur, 02. júní 2015 18:50 |
Til hamingju með daginn !
|
|
Sunnudagur, 31. maí 2015 15:51 |
Á aðalfundinum kom það helst fram í skýrslu stjórnar að mestur tími og fjármagn hefur farið í að undirbúa Smáþjóðaleikana, sem fram fara dagana 1. til 6. júni. Stjórn félagsins er óbreytt frá fyrra aðalfundi - og samþykkt var að hækka árgjaldið í 20þúsund, en árgjaldið hefur verið óbreytt í uþb 14 ár. Fram kom í skýrslu stjórnar að eftir Smáþjóðaleikana verður farið í áframhaldandi framkvæmdir á riffil- og haglasvæði félagsin. M.a. er stefnt á að koma upp Sporting og Nordisk Trap og lagfæra ýmsa hluti á riffilvellinum, m.a. að kom upp ljósabúnaði á 100 metra battanum. Verið er að senda út félagsgjöldin þessa dagana og vonar stjórn félagsins að vel verði tekið í þessa hækkun félagsgjalda, enda næg verkefni framundan - eins og áður sagði á útsvæðinu á Álfsnesinu, sem þarf að fjármagna. Rétta er að minna á - að allar þær frakvæmdir sem farið hafa fram vegna Smáþjóðaleikana munu nýtast félagsmönnum til framtíðar í nýjum og bættum búnaði ásamt aðstöðunni sem hefur fengið andlitslyftingu undanfarið.
|
Sunnudagur, 31. maí 2015 07:40 |
Skotíþróttir á Smáþjóðaleikunum.
Nú styttist í að keppni í skotíþróttum hefjist á Smáþjóðaleikunum í Reykjavík. Það eru loftriffilskyttur í karlaflokki sem hefja leikinn þriðjudaginn 2. júní og hefst keppni þeirra kl. 9:00 Loftriffil kvenna hefst kl. 13:00 sama dag en keppnin í loftgreinunum fer fram í Íþróttahúsi fatlaðra við Hátún og er ókeypis inn á keppnirnar og þær öllum opnar. Er þetta einstakt tækifæri til að fylgjast með toppskyttum í keppni. Í loftriffli karla eru það Sigurbergur Logi Benediktsson og Theodór Kjartansson sem keppa fyrir Íslands hönd en í kvennaflokki eru Jórunn Harðardóttir og Íris Eva Einarsdóttir, Íslandsmethafinn, í eldlínunni en Íris Eva varð í 5. sæti á Smáþjóðaleikunum í Lux 2013
|
Nánar...
|
Föstudagur, 29. maí 2015 08:21 |
Ásgeir Sigurgeirsson endaði í 18.sæti í frjálsri skammbyssu í München í morgun sem er frábær árangur. Keppendur voru 120 talsins en 70 þeirra komust áfram í úrslitakeppnina. Í lokaúrslitin (final) komust 8 efstu. Ásgeir náði 557 stigum (91 94 95 93 90 94) en þurfti 3 stigum meira til að komast í úrslit.
|
Fimmtudagur, 28. maí 2015 08:11 |
 Dagskrá Smáþjóðaleikanna er komin hérna. Hvetjum alla skotmenn að koma nú og fylgjast með þessum viðburðum í næstu viku. Keppt er í loftskammbyssu og loftriffli í Íþróttahúsinu í Hátúni og svo er keppt í 50m liggjandi riffli og haglabyssu skeet á Álfsnesi. Fyrir Ísland keppa eftirtaldir: í loftskammbyssu Thomas Viderö, Ívar Ragnarsson, Guðrún Hafberg og Jórunn Harðardóttir. Í loftriffli Theodór Kjartansson, Logi Benediktsson, Jórunn Harðardóttir og Íris E. Einarsdóttir. Í 50m riffli Jón Þ. Sigurðsson og Guðmundur H. Christensen. Í haglabyssu skeet Sigurður U. Hauksson og Örn Valdimarsson.
|
Fimmtudagur, 28. maí 2015 07:58 |
Ásgeir Sigurgeirsson keppti í dag í undanrásunum í Frjálsu skammbyssunni(50m Pistol). Hann var í seinni riðlinum sem hófst kl.09:15 að okkar tíma. Hægt er að fylgjast með hérna. Hann endaði með 550 stig og flaug áfram í úrslitakeppnina sem er á morgun. Hann keppir einnig í Loftskammbyssu á sunnudaginn.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 111 112 113 114 115 116 117 118 119 120 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 118 af 295 |