Páksamót SR í skeet á laugardag Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 31. mars 2015 22:29

gkg_2060Hið árlega Páskamót SR í skeet verður á laugardaginn kemur á Álfsnesi. Mæting kl.10:30. Skráning með tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða bara á staðnum.. Skotið verður með nýju Mattarelli-kastvélunum og svo stefnir allt í að raddstýrirkerfið (Voice Control frá Progetti)verði einnig notað í fyrsta skipti.

AddThis Social Bookmark Button
 
SR liðið Íslandsmeistarar í Grófri skammbyssu Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 29. mars 2015 20:42

2015 grofskb islmot 29marÁ Íslandsmótinu í Grófri skammbyssu sem haldið var í Digranesi í dag sigraði Grétar M.Axelsson úr SA með 548 stig, annar varð Karl Kristinsson úr SR með 542 stig og í þriðja sæti Eiríkur Ó. Jónsson úr SFK með 517 stig.

Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1,550 stig (Karl Kristinsson, Kolbeinn Björgvinsson og Engilbert Runólfsson), í öðru sæti varð A-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs með 1,526 stig (Sigurgeir Guðmundsson, Eiríkur Ó.Jónsson og Friðrik Goethe) og í þriðja sæti B-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs með 1,491 stig (Guðmundur T.Ólafsson,Ólafur Egilsson og Emil Kárason).

Eins urðu félagsmenn úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistarar í sínum flokki þeir Karl Kristinsson í 2.flokki og Kolbeinn Björgvinsson í 0.flokki

AddThis Social Bookmark Button
 
Íslandsmóti í Sportskammbyssu lokið Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 28. mars 2015 16:18

2015 sportskb islm 28marÁ Íslandsmótinu í Sport skammbyssu í Egilshöllinni í dag sigraði Grétar M. Axelsson úr SA með 536 stig, Karl Kristinsson úr SR varð annar með 524 stig og í þriðja sæti var Eiríkur Ó. Jónsson úr SFK með 523 stig. Í liðakeppninni sigraði A-sveit SFK með 1,513 stig, önnur varð A-sveit SR með 1,476 stig og íþriðja sæti hafnaði sveit SA með 1,461 stig.

AddThis Social Bookmark Button
 
Raddstýringarkerfið að koma Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 25. mars 2015 23:10

2015 voice012015 voice022015 voice03Fyrsti staurinn með raddstýringunum er nú kominn upp. Okkar menn vinna nú hörðum höndum við að koma raddstýringunum í gang á skeet völlunum og er vonast til að hægt verði að prófa búnaðinn á Páskamótinu í Skeet sem haldið verður laugardaginn 4.apríl á Álfsnesi.

AddThis Social Bookmark Button
 
Riðlaskipting Íslandsmótsins á laugardag Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 25. mars 2015 15:13

2015 sportskb ridlar 28marsRiðlaskipting Íslandsmótsins í Sport skammbyssu sem haldið verður í Egilshöllinni á laugardaginn er komin hérna. Eins er Íslandsmót í Grófri skammbyssu á sunnudaginn í Digranesi og ætti riðlaskiptingin að vera komin á heimasíðu SFK: www.skotkop.is

AddThis Social Bookmark Button
 
Guðmundur Helgi vann í dag í rifflinum Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 22. mars 2015 19:22

2015 landsmot 60sk 22 marsLandsmót STÍ í 60 skotum liggjandi riffli, sem haldið var í Digranesi í dag, sigraði Guðmundur Helgi Christensen í karlaflokki

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 121 122 123 124 125 126 127 128 129 130 Næsta > Síðasta >>

Síða 125 af 296

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing