Sunnudagur, 30. ágúst 2009 19:01 |
Örn Valdimarsson varð Reykjavíkurmeistari í Skeet í dag á 112 + 21. Á Reykjavik Open í sigraði aftur á móti Sigurþór Jóhannesson úr SÍH í A-flokki á nýjum Íslandsmetum, 119 stig fyrir úrslit og síðan skaut hann 23 dúfur í úrslitunum og bætti þar með eldra met sitt um 2 stig. Í B-flokki sigraði Hörður S.Sigurðsson úr SÍH með 97+16 stig. Úrslit mótsins eru hérna og svo eru komnar myndir hérna.
|
|
Laugardagur, 29. ágúst 2009 16:39 |
Eftir 3 hringi er Sigurþór
|
Nánar...
|
Föstudagur, 28. ágúst 2009 13:05 |
Hérna er riðlaskiptingin fyrir Reykjavík Open.
|
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009 08:55 |
Þau undur og stórmerki gerðust í dag, að viðtal er við skotmann á íþróttasíðu Morgunblaðsins. Það er ár og dagur síðan fjölmiðlar sýndu einhverja viðleitni í okkar garð í þessa veru. Viðtal er við Sigurþór Jóhannesson, Íslandsmeistara í skeet. Greinin er hérna.
|
Þriðjudagur, 25. ágúst 2009 10:07 |
Opna Reykjavíkurmótið í SKEET-haglabyssu, Reykjavik Open, verður haldið á völlum okkar um helgina. Skráningu lýkur í kvöld á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Keppt verður í A og B flokkum og verður raðað eftir fyrri daginn, helmingur keppenda keppir þá seinni daginn í A-flokki og hinn helmingurinn í B-flokki. Final er haldinn í báðum flokkum.
|
Föstudagur, 21. ágúst 2009 21:22 |
Ýmislegt hefur verið framkvæmt á undanförnum dögum á svæði okkar í Álfsnesi. Búið er að setja upp batta á 25 og 50 metrunum, búið að merkja afmörkun á brautum á batta, öryggisgirðingar við enda riffilhússins eru komnar upp,
|
Nánar...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 261 262 263 264 265 266 267 268 269 270 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 270 af 293 |