| 
		
	| Fimmtudagur, 06. maí 2010 07:30 |  
| Minnum félagsmenn á aðalfund félagsins sem haldinn verður í kvöld í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Hann hefst kl. 19 og verður í aðalhúsi ÍSÍ á 3.hæðinni í sal E. |  | 
	| 
		
							| 
	| Miðvikudagur, 05. maí 2010 10:41 |  
| Á minningarmótinu um Hans Christensen sem haldið var í Egilshöllinni í gær sigraði Ásgeir Sigurgeirsson í loftskammbyssu karla með 579 stig. Í loftriffli sigraði Guðmundur Helgi Christensen með 557 stig. Alls mættu 15 keppendur til leiks. |  
	| Laugardagur, 01. maí 2010 21:19 |  
| Okkar maður, Örn Valdimarsson, sigraði á landsmótinu í skeet, sem haldið var í Þorlákshöfn í dag. Hann skaut 68 leirdúfur af 75 í undankeppninni og toppaði síðan árangurinn og skaut allar 25 skífurnar í úrslitakeppninni. Þorgeir M.Þorgeirsson varð í 7.sæti og Einar Einarsson varð í 14.sæti. Saman enduðu þeir í 3.sæti í liðakeppninni. Óskar Karlsson skaut 45 dúfur og varð í 1.sæti í unglingaflokki. Fínn árangur hjá okkar mönnum. |  
	| Fimmtudagur, 29. apríl 2010 19:30 |  
| Á þriðjudaginn kemur verður haldið hið árlega Christensenmót í loftbyssugreinunum en það er haldið til minningar um Hans P.Christensen fyrrverandi ritara félagsins. Keppendur geta byrjað kl. 14:00 á þriðjudaginn en keppt er í opnum flokki, þ.e. karlar og konur skjóta bæði 60 skotum. Gott væri að fá skráningu frá þeim sem hug hafa á að mæta til keppni en það er þó ekki nauðsynlegt. Þið getið skráð ykkur á staðnum. Mótið er opið öllum óháð félagsaðild. Hefð hefur skapast fyrir því að skyldumæting er á mótið af félagsmönnum okkar. |  
	| Miðvikudagur, 28. apríl 2010 14:18 |  
| Undanþága fékkst frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar til að halda skotvopnanámskeið lögreglunnar og Umhverfisstofnunar sem hefst á sunnudaginn kl.10:00 og stendur til um 14:00 að öllum líkindum. Fjöldi þáttakenda er rétt rúmlega 40 manns að þessu sinni. Önnur starfsemi á svæðinu er lokuð þennan daginn. |  
	| Þriðjudagur, 20. apríl 2010 10:28 |  
| Verslunin Hlað hefur ákveðið í samvinnu við SR og sænska skotframleiðandann Norma, að endurtaka mótið sem haldið var í fyrra. Við höfum þegar ráðstafað riffilvellinum undir mótið sem haldið verður laugardaginn 17.júlí og hefst það kl. 13:00. Opið verður fyrir almennar æfingar kl. 10 - 12 þennan dag. Á mótinu verður einungis hægt að keppa með Norma verksmiðjuskotum og aðeins í caliberunum 308 og 6,5x55. |  |  | 
	| << Fyrsta < Fyrri 261 262 263 264 265 266 267 268 269 270 Næsta > Síðasta >> 
 
 | 
	| Síða 264 af 298 |