| 
		
	| Fimmtudagur, 27. maí 2010 11:17 |  
| Nú er sumaropnun svæða félagsins komin í framkvæmd. Lokað verður í Egilshöllinni í sumar nema að opið verður kl.19-21 á fimmtudögum í júní og ágúst. Við opnum svo aftur í október. Á Álfsnesi verður opið kl.16 til 21 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga. Á miðvikudögum verður opið frá kl.12 til 21 og svo á laugardögum kl.10 til 18. Mótahald getur truflað þetta eitthvað og eins sérgreinaæfingar en vonandi verður það í lágmarki. |  | 
	| 
		
							| 
	| Miðvikudagur, 26. maí 2010 23:45 |  
| Reykjavíkurmeistarar 2010 eru eftirtaldir: Í loftriffli karla Guðmundur Helgi Christensen, í loftriffli og loftskammbyssu kvenna Jórunn Harðardóttir og i loftskammbyssu karla Guðmundur Kr. Gíslason. Á Meistaramóti Reykjavíkur sem haldið var í Egilshöllinni í kvöld var keppt um þessa titla. Nánari úrslit eru hérna. |  
	| Þriðjudagur, 25. maí 2010 20:56 |  
| Keppnin í Fríbyssu á heimsbikarmótinu í USA fer fram á sunnudaginn kl.16:30 að íslenskum tíma. |  
	| Þriðjudagur, 25. maí 2010 20:21 |  
| Á morgun, miðvikudag, fer fram Reykjavíkurmótið í loftbyssugreinunum í Egilshöllinni. Mótið hefst uppúr kl. 16:00 og stendur til kl.20:00.  |  
	| Þriðjudagur, 25. maí 2010 15:09 |  
| Ásgeiri gekk ágætlega í loftskammbyssunni í dag. Hann náði 573 stigum af 600 mögulegum og endaði í 23.sæti sem er auðvitað frábært. Hann vantaði aðeins 8 stig til að komast í úrslit. Skorin má skoða hérna. Nú bíðum bara eftir helginni en þá keppir hann í Fríbyssunni. Fréttastofan mun koma með nánari tímasetningar innan skamms. |  
	| Mánudagur, 24. maí 2010 18:13 |  
| Ásgeir Sigurgeirsson keppir í loftskammbyssu á heimsbikarmótinu á morgun, þriðjudag, kl.13:00 að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með honum á skorsíðu ISSF. Þar er einnig hægt að fylgjast með öðrum greinum mótsins. Úrslitin eru einnig sýnd beint á ISSF-TV og á eftir kl.19:30 verða úrslitin í loftskammbyssu kvenna sýnd beint hérna. Veljið LIVE TV hægra megin á skjánum. |  |  | 
	| << Fyrsta < Fyrri 261 262 263 264 265 266 267 268 269 270 Næsta > Síðasta >> 
 
 | 
	| Síða 262 af 298 |