Lokakeppni ISSF stendur nú yfir í Kína Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 26. október 2009 21:31
Lokakeppni Alþjóðaskotsambandsins stendur nú yfir í Kína. Þar keppa 10 efstu eftir keppnistímabilið í hverri grein. Nú stendur yfir keppni í kúlugreinunum og síðan hefst keppni í haglabyssunni seinna í vikunni. Fylgjast má með framvindu mála á heimasíðu Alþjóðaskotsambandsins ISSF.
AddThis Social Bookmark Button
 
Fyrsta keppnin í skammbyssu á miðvikudaginn ! Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 19. október 2009 15:04
Munið að á miðvikudaginn er fyrsta mánaðarkeppnin í Egilshöllinni. Sjá má nánar um keppnina í fréttum 14.október.
AddThis Social Bookmark Button
 
Vetrarstarfið í Egilshöllinni í fullum gangi ! Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 14. október 2009 23:25
Starfsemi félagsins í Egilshöll hófs eftir mánaðarmótin í október. Æfingar eru með sama hætti og áður nema á miðvikudögum eru skammbyssuæfingar í 50 metra salnum og aðrar æfingar ekki leyfðar í salnum á þeim tíma. Þetta hefur engin áhrif á loftbyssusalinn, en æfingar í honum eru eins og áður. Stjórn félagsins hvetur fólk að mæta, hvort sem það er félagsmenn eða ekki og kynna sér aðstöðuna. Sjá nánar á opnunartímar hér að ofan og Skotstjórar veita upplýsingar á staðnum.
AddThis Social Bookmark Button
 
Mánaðarkeppnir í skammbyssu Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 14. október 2009 09:33

Miðvikudagar eru nú fráteknir í Egilshöllinni fyrir sérstakar skammbyssuæfingar

AddThis Social Bookmark Button
Nánar...
 
Skotvopnanámskeið lögreglunnar á laugardaginn Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 15. september 2009 08:57

Heilbrigðiseftrilit Reykjavíkurborgar hefur veitt okkur undanþágu til að hefja skotvopnanámskeið lögreglunnar og Umhverfisstofnunar kl. 10 á laugardögum í haust. Vetrartími er annars kominn á starfsleyfið og því verður ekki opnað fyrir almenna starfsemi fyrr en kl.12 á laugardögum í vetur.

AddThis Social Bookmark Button
 
Örn Valdimarsson sigraði á Bikarmótinu í dag Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 12. september 2009 19:47

Okkar maður, Örn Valdimarsson, sigraði á Bikarmóti STÍ í halgabyssu skeet í dag á meistaraflokksskori, 114 stigum. Í öðru sæti varð Sigurþór Jóhannesson úr SÍH en hann varð jafnframt Bikarmeistari STÍ en þar er talinn saman árangur alls keppnistímabilsins. Í þriðja sæti varð Guðmann Jónasson frá MAV. Nánari úrslit eru á www.sti.is og myndir komnar hérna !
AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 261 262 263 264 265 266 267 268 269 270 Næsta > Síðasta >>

Síða 269 af 293

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing