Þriðjudagur, 22. júní 2021 19:24 |
Opið á Álfsnesi á morgun miðvikudag 16-19
|
|
Fimmtudagur, 17. júní 2021 12:57 |
Við fögnum þjóðhátiðardeginum með því að hafa opið á Álfsnesinu í dag til kl.19:00 !!
|
Laugardagur, 12. júní 2021 17:07 |
Staðan eftir fyrri daginn er þannig að Jakob Þ. Leifsson úr SFS er efstur með 68 stig, G.Bragi Magnússon úr SA og Hákon Þ.Svavarsson úr SFS eru jafnir með 67 stig. Í kvennaflokki er María R.Arnfinnsdóttir úr SÍH efst með 59 stig, Helga Jóhannsdóttir úr SÍH er önnur með 53 stig og Dagný H. Hinriksdóttir úr SR 3ja með 50 stig. Keppni heldur áfram í fyrramálið og hefst kl.10:00. Skotnir verða þá 2 hringir og svo eru finalar í bæði karla og kvennaflokki. Þeir gætu hafist um kl.14:30
|
Þriðjudagur, 08. júní 2021 09:07 |
Hérna er riðlaskipting Landsmóts STÍ í Skeet sem haldið verður á Álfsnesi um helgina. Lokað verður á haglavöllunum á laugardaginn en opið á riffilsvæðinu.
Við viljum minna keppendur á að ALGJÖRT BLÝBANN er á svæðinu og því eingöngu leyfð notkun stálskota..
Keppnisæfingar verða á föstudaginn kl.12-19
|
Sunnudagur, 06. júní 2021 21:31 |
Vinur okkar, Tjaldurinn, liggur nú á hreiðri sínu í mölinni á velli 2. Lokað verður á honum næstu 2-3 vikurnar eða þar til ungarnir hafa flogið úr hreiðrinu.Landsmót STÍ sem haldið verður um næstu helgi hefur verið flutt á völl 3. Tjaldurinn liggur sem fastast þó verið sé að skjóta á velli 1 og 3, finnur greinilega fyrir örygginu að vera meðal okkar og hvetjum við alla til að forðast að trufla varpið. Fleiri hreiður eru á skotsvæðinu en ekki á eins áberandi stað og þetta.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 35 af 294 |