Þriðjudagur, 30. mars 2021 16:20 |
|
Nánar...
|
|
Miðvikudagur, 24. mars 2021 16:14 |
Vegna nýrra sóttvarnarreglna verður skotsvæðinu á Álfsnesi og skotsalnum í Egilshöll lokað frá og með fimmtudeginum 25.mars til og með 15.apríl, eða þar til annað verður ákveðið.
|
Miðvikudagur, 24. mars 2021 15:29 |
Reykjavíkurmótinu í loftbyssu sem halda átti á laugardaginn er hér með AFLÝST vegna nýrra COVID-reglna !
|
Miðvikudagur, 24. mars 2021 09:28 |
Hérna kemur riðlaskipting Reykjavíkurmótsins á laugardaginn.
|
Þriðjudagur, 23. mars 2021 09:47 |
Skotíþróttasambandið var að árétta reglur um afskráningar. Fréttin er í heild sinni hérna:Â
Við viljum árétta reglur um afskráningar keppenda á viðurkennd STÍ-mót. En í Móta-og keppnisreglum STÍ segir í 12. gr. :
Mæti keppandi ekki til leiks, án þess að boða tilskilin forföll á sannanlegan hátt til mótshaldara, í síðasta lagi sólahring fyrir setningu móts (24 klst), skal hann greiða móta og keppnisgjald til mótshaldara. Mótshaldara er skylt að láta stjórn STÍ vita af forföllum, með tölvupósti um leið og tilkynning berst frá keppanda. Félag keppenda er ábyrgt fyrir móta og keppnisgjaldi. 13. gr. Falli greiðsla niður á keppnis- og mótagjaldi frá bæði keppanda og félagi hans er óheimilt að skrá hann til keppni fyrr en gjaldið hefur verið greitt.
|
Fimmtudagur, 18. mars 2021 09:13 |
Hér eru nokkur lykilatriði sem íþróttamenn okkar verða að fylgja samkvæmt nýja starfsleyfinu :
- Haglaskot með blýhöglum eru bönnuð
- Æfingar eru leyfðar á mánudögum til fimmtudaga kl. 10-19
- Æfingar eru leyfðar á laugardögum kl. 10-16
- Æfingar eru ekki leyfðar á föstudögum og sunnudögum
- Æfingar eru bannaðar á: Aðfangadag eftir kl. 12, Jóladag, Nýársdag, Föstudaginn langa, Páskadag og annan í Páskum.
- Einungis er leyft að halda fjögur mót á ári en þá má hafa opið á föstudögum, laugardögum og sunnudögum kl. 10-19 en við þurfum að tilkynna þau með 14 daga fyrirvara til Heilbrigðiseftirlits.
Það er öldungis óvíst hvernig tekst að halda starfseminni gangandi undir þessum nýju kvöðum og mun það skýrast á næstu vikum.
Nú þegar eru tveim helgum ráðstafað undir mótahald samkvæmt mótaskrá Skotíþróttasambands Íslands, Landsmót í haglabyssugreininni SKEET dagana 11. til 13. Júní og 3. - 5. september er Íslandsmótið í riffilgreininni Bench Rest og Opna Reykjavíkurmeistaramótið í SKEET (SR OPEN)
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 40 af 294 |