Laugardagur, 05. mars 2022 17:31 |
![2022 50m5marjontor](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5marjontor-68x90.jpg) ![2022 50m5mar1uka](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5mar1uka-68x90.jpg) ![2022 50m5mar12ukv](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5mar12ukv-38x50.jpg) ![2022 50m5mar123ka](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5mar123ka-90x68.jpg) ![2022 50m5mar123kv](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5mar123kv-68x90.jpg) ![2022 50m5marlidka](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5marlidka-90x68.jpg) ![2022 50m5marlidkv](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5marlidkv-90x68.jpg) ![2022 50m5marskyttur](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5marskyttur-90x68.jpg) ![2022 50m5martolvudeild](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5martolvudeild-90x68.jpg) ![2022 50m5marukakv](/images/thumbnails/images/greinar/2022 50m5marukakv-90x68.jpg) Á Landsmóti STÍ sem haldið var í Egilshöll í Reykjavík, bætti Jón Þór Sigurðsson eigið Íslandsmet í 50 metra liggjandi riffli með skori uppá 626,1 stig. Óðinn Magnússon úr SKS setti nýtt Íslandsmet í flokki unglinga með 501,2 stig. Önnur úrslit urðu þau að í karlaflokki varð Guðmundur Helgi Christensen úr SR annar með 613,2 stig og þriðji varð Valur Richter úr SÍ með 613,1 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Haðrardóttir úr SR með 613,3 stig, Bára Einarsdóttir úr SFK varð önnur með 612,5 stig og Íris Eva Einarsdóttir úr SR þriðja með 584,5 stig. Í stúlknaflokki sigraði Viktoría Erla Bjarnarson úr SR með 564,3 stig og Karen Rós Valsdóttir úr SÍ varð önnur með 504,2 stig. Í liðakeppni karla sigraði sveit SÍ með 1820,4 stig og í kvennaflokki sveit SR með 1762,1 stig.
|