Heimsbikarmótinu var að ljúka í München Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 28. maí 2013 10:03

asgeir_styrkmyndHeimsbikarmótinu í München var að ljúka og hafnaði Ásgeir í 23.sæti af 105 keppendum, sem er auðvitað frábær árangur. Hann skaut 577 stig (97 96 96 94 97 97) sem er samt þó nokkuð frá Íslandsmetinu sem hann setti fyrir skömmu 589 stig. Hann er sem stendur í 22.sæti á heimslistanum í loftskammbyssunni og í 13.sæti á evrópulistanum. Árangur hans er því alveg í takt við stöðu hans því hann varð í 12.sæti af evrópukeppendunum. Ásgeir pakkar nú saman og flýgur til móts við félaga sína í íslenska landsliðinu sem eru nú staddir á Smáþjóðaleikunum í Luxemburg. Þar hefst keppni í loftriffli í fyrramálið en í loftskammbyssunni á föstudaginn.

AddThis Social Bookmark Button
 
Orginal SR fáninn Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 27. maí 2013 20:00

sr fni 1867Til gamans þá er hér mynd af upprunalega Skotfélags Reykjavíkur fánanum síðan á stofndaginn 2.júní 1867. Fáninn er geymdur hjá Þjóðminjasafninu og fylgir honum texti sem lesa má neðst á þessari blaðsíðu.

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir keppir í fyrramálið Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 27. maí 2013 19:40

steyr lp10 airpistolÁsgeir Sigurgeirsson keppir í loftskammbyssu á Heimsbikarmótinu í München í fyramálið. Hægt verður að fylgjast með á heimasíðu Alþjóða skotsambandsins ISSF hérna.

AddThis Social Bookmark Button
 
Skráning á landsmótið í skeet um næstu helgi Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 27. maí 2013 19:31

gunni_og_brandur_gkg_4124Um næstu helgi fer fram Landsmót STÍ í skeet á svæði okkar á Álfsnesi. Skráningu keppenda lýkur á þriðjudag. Konur skjóta 75 dúfur og final á laugardeginum og karlar skjóta 75 dúfur á laugardeginum og svo 50 dúfur plús final á sunnudeginum. Veitt verða hefðbundin verðlaun samkvæmt reglum STÍ.

AddThis Social Bookmark Button
 
Maí-mót SR í skeet Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 27. maí 2013 15:26

2013 skeet maimot sr 26maoFámennt en góðmennt var á Maí-móti SR í skeet sem fram fór í gær. Skotnir voru tveir hringir og final. Kjartan Örn Kjartansson sigraði, Örn Valdimarsson varð annar og Hjörtur Sigurðsson þriðji.

AddThis Social Bookmark Button
 
ISSF tímaritið á tölvutæku formi Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 27. maí 2013 13:20

 issfnavISSF tímaritið er nú fáanlegt á tölvutæku formi fyrir iPAD tölvurnar hérna.

 

 

 

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 171 172 173 174 175 176 177 178 179 180 Næsta > Síðasta >>

Síða 176 af 296

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing