Fimmtudagur, 26. desember 2019 09:48 |
Við neyðumst til að aflýsa riffilmótinu sem halda áttti á sunnudaginn, vegna veikinda.
|
|
Laugardagur, 21. desember 2019 09:52 |
Það verður lokað hjá okkur í dag, laugardag. Opið verður á Álfsnesi 28.desember kl. 12-16
|
Sunnudagur, 15. desember 2019 17:29 |
Á landsmóti STÍ sem haldið var í Egilshöllinni í dag, jafnaði Jórunn Harðardóttir úr SR eigið Íslandsmet í rifflgreininni Þríþraut, 1095 stig. Í greininni er skotið 3x40 skotum, liggjandi, krjúpandi og standandi. Önnur í kvennaflokki varð Guðrún Hafberg úr SFK með 957 stig. Í karlaflokki sigraði Guðmundur Helgi Chrsitensen úr SR með 1,109 stig, annar varð Þórir Kristinsson úr SR með 1,020 stig og í þriðja sæti Valur Richter úr SÍ með 1,001 stig. Í liðakeppninni bætti sveit SR eigið Íslandsmet með 3,053 stig og sveit SÍ hreppti silfrið með 2,813 stig. Hægt er að skoða nánar á SIUS-síðunni
|
Laugardagur, 14. desember 2019 20:10 |
Á landsmóti STÍ í 50m liggjandi riffli sem haldið var í Kópavogi í dag, sigraði Jón Þór Sigurðsson úr SFK í karlaflokki með 618,7 stig, annar varð Arnfinnur Jónsson úr SFK með 610,7 stig og í þriðja sæti varð Valur Richter úr SÍ með 605,7 stig.
Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 605,5 stig og önnur varð Guðrún Hafberg úr SFK með 583,3 stig. Í liðakeppninni sigraði sveit SFK, A-sveit SÍ varð önnur og í þriðja sæti B-sveit SÍ. Nánar á úrslitasíðu STÍ.
|
Laugardagur, 14. desember 2019 13:05 |
LOKAÐ á Álfsnesi í dag
|
Þriðjudagur, 10. desember 2019 20:07 |
Sunnudaginn 15.des fer fram landsmót STÍ í 50 metra Þrístöðu í Egilshöllinni.
HÆGT að fylgjast með í beinni hérna.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 55 af 294 |