Daníel og Dagný eru Reykjavíkurmeistarar 2020 Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 05. september 2020 22:02

2020 sropen a123-88812020 sropen afinal-87682020 sropen b123-88742020 sropen bfinal-86412020 sropen rekmeist-88872020 sropen tikkat1x-88912020 sr open skeet 5septReykjavíkurmótið í haglabyssugreininni SKEET, SR OPEN, fór fram á svæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi í dag. Í A-flokki sigraði Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar með 46 stig í úrslitum (106 stig í undankepnninni), Daníel Hrafn Stefánsson úr Skotfélagi Reykjavíkur varð annar með 44 stig (106) og Guðlaugur Bragi Magnússon úr Skotfélagi Akureyrar varð þriðji með 31 stig (105). í B-flokki sigraði Jón Valgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 41 stig (94 stig í undankeppninni) Sigurður Áki Sigurðsson úr Skotfélagi Akureyrar varð annar og Björn G. Hilmarsson úr Skotfélagi Akraness varð þriðji. Reykjavíkurmeistari karla varð Daníel Hrafn Stefánsson úr SR og Reykjavíkurmeistari kvenna varð Dagný Huld Hinriksdóttir úr SR.

AddThis Social Bookmark Button