Úrslit Landsmótsins um helgina Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 14. júní 2020 20:18

2020 lmot sr 13 14 juni urslit2020 skeet14junika123-74112020 skeet14junikv123-74142020 skeet14juniun12-74062020 skeet14junilid123-74032020 skeet14juniptg1-7328Fyrsta Landsmót sumarsins í Ólympísku skotgreininni Skeet fór fram á skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi um helgina. 19 keppendur mættu til leiks. Í kvennaflokki sigraði Dagný H. Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 83 stig, Helga Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Suðurlands varð önnur með 80 stig og Guðrún Hjaltalín úr Skotfélagi Akraness þriðja með 56 stig. Í unglingaflokki sigraði Daníel L. Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar með 90 stig og Ágúst I. Davíðsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands með 80 stig. Í karlaflokki sigraði Pétur T. Gunnarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 116 stig, Stefán G. Örlygsson úr Skotfélagi Akraness varð annar með 114 stig eftir bráðabana, sem endað 3:2, við Hákon Þ. Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands sem einnig var með 114 stig. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotíþróttafélags Suðurlands með 323 stig, Skotfélag Akureyrar varð í öðru sæti með 270 stig og Skotfélag Akraness með 269 stig.

AddThis Social Bookmark Button
 
Staðan eftir fyrri daginn á Landsmótinu í Skeet Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 13. júní 2020 16:55

2020 lmot sr 13 14 juni dag 1Fyrri degi er nú lokið á Landsmótinu í Skeet á Álfsnesi. Myndir hérna: 

AddThis Social Bookmark Button
 
Landsmót í Skeet um helgina Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 10. júní 2020 10:01

2020 ridlar 13juni2020 keppend 13juniFyrsta Landsmótið þetta árið í haglabyssugreininni SKEET fer fram á Álfsnesi um helgina.

AddThis Social Bookmark Button
 
Jón og Felix með gull á Blönduósi Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 06. júní 2020 21:07

2020 nt landsmot mav 6junFyrsta Landsmót sumarsins í fór fram í dag. Keppt var í Norrænu Trappi á Blönduósi. Jón Valgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði, Jóhann Halldórsson úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar varð annar og í þriðja sæti Lúther Ólason úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Í kvennaflokki mætti einn keppandi Snjólaug M. Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss og eins í unglingaflokki, Felix Jónsson úr Skotfélagi Reykjavíkur, en hann setti jafnframt nýtt Íslandsmet í unglingaflokki, 71 stig. 

AddThis Social Bookmark Button
 
153 ár frá stofnun félagsins í dag Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 02. júní 2020 10:30

sr_logo_2.juni.1867skothusvegur2Til hamingju allir félagsmenn, 153 ár í dag frá stofnun félagsins okkar.

Skotfélag Reykjavíkur á sér langa sögu í borginni, en það er elsta íþróttafélag landsins og var stofnað 2. júní árið 1867. Fyrstu skotæfingar félagsins fóru fram við tjörnina í Reykjavík en heimildir um skotæfingar við Tjörnina ná enn lengra aftur eða til ársins 1840. Það er því rík hefð fyrir skotfimi í Reykjavík.

Skothúsvegur við Tjörnina í Reykjavík dregur nafn sitt af Skothúsi Skotfélags Reykjavíkur, en skothúsið var reist af skotfélagsmönnum um það leyti sem félagið var stofnað. Húsið stóð u.þ.b. þar sem nú er Tjarnargata 35, og hét þá því formlega nafni "Reykjavigs Skydeforenings Pavillon". Skothúsið, eins og það var kallað í daglegu tali, var félagsheimili skotfélagsmanna, sem síðar var notað sem íbúðarhús og loks rifið um 1930. Skothúsvegur liggur milli Suðurgötu og Laufásvegar, í austur og vestur, þvert yfir Tjörnina og er að hluta á brú sem var smíðuð árið 1920.

Starfsemi Skotfélags Reykjavíkur á sér lengri forsögu en frá formlegri stofnum þess 1867.
Íslenskir og danskir menn stóðu að stofnun félagsins árið 1867. Fyrir stofnun félagsins voru stundaðar skotæfingar við Tjörnina í Reykjavík frá árinu 1840. Þá voru leyfðar skotæfingar á litlum tanga sem lá út í Tjörnina þar sem Skotfélagsmenn reistu síðar skotvörðu rétt austan við Skothúsið. Skotfélagsmönnum var gert að skjóta í suður í áttina að Skildingarnesi. Skotstefnan var samsíða Suðurgötu í átt að Skerjafirði.

Á árunum eftir stofnun félagsins mættu menn reglulega til æfinga í hverri viku og margar keppnir í skotfimi voru haldnar og verðlaun veitt fyrir góðan árangur. Á fyrstu árum félagsins var hefðarbragur á allri starfssemi, enda helstu fyrirmenn bæjarins meðlimir í Skotfélaginu. Þegar æfingar Skotfélagsins voru haldnar var gefin út viðvörun til bæjarbúa og þeir varaðir við að vera á ferli á melunum og í skotlínu skotmanna, vegna slysahættu af völdum skota. Þannig var háttur á hafður á skotsvæði Skotfélags Reykjvíkur við Skothúsveg að hlaðin var steinvarða við enda skotbrautarinnar og var skotmarki úr timbri stillt upp við hana. Guðmundur, sem var utangarðsmaður í Reykjavík á þessum tíma, hafði þann starfa að standa á bak við vörðuna þegar skotæfingar voru haldnar. þegar hlé var gert á skothríðinni fór Guðmundur fram fyrir vörðuna og benti með flaggi á hvar skotin höfðu hitt í skífuna og af þessu fékk hann viðurnefnið "Vísir". Þar sem timbur skotskífur entust illa var síðar tekin í notkun skotskífa úr stáli og sagði Guðmundur Vísir starfi sínu lausu fljótlega eftir það.

AddThis Social Bookmark Button
 
Hreindýraprófin á fullu Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 27. maí 2020 09:00

hreindprofgsHreindýrapróf eru nú flesta daga vikunnar á Álfsnesi. Gunnar er við símann. Nánar hérna

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 Næsta > Síðasta >>

Síða 49 af 294

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing