|
|
|
Þriðjudagur, 18. apríl 2017 09:09 |
|
Reykjavíkurmótið verður haldið á morgun í Egilshöll, 19. apríl. Mótið verður haldið með hefðbundnu sniði, án riðlaskiptingar. Fyrstu keppendur geta byrjað kl 17:00 og þeir síðustu kl 20:00. Keppnisæfing er á opnunartíma í dag, þriðjudag, milli 19:00 og 21:00.
|
|
Sunnudagur, 09. apríl 2017 19:51 |
|
 Íslandsmótið í Sport skammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. 18 keppendur mættu til leiks og fór svo að Jón Þór Sigurðsson úr SFK sigraði með 546 stig og 10 X-tíur, annar varð Grétar Mar Axelsson úr SA einnig með 546 stig og 6 X-tíur og í þriðja sæti með 539 stig var Ívar Ragnarsson úr SFK. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Sktíþróttafélags Kópavogs (SFK) með 1,605 stig en sveitina skipuðu Ívar Ragnarsson,Friðrik Goethe og Eiríkur Ó.Jónsson. Í öðru sæti varð B-sveit Skotfélags Reykjavíkur (SR) með 1,541 stig en hana skipuðu Ólafur Gíslason,Kolbeinn Björgvinsson og Jórunn Harðardóttir. Í þriðja sæti hafnaði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1,540 en sveitin var þannig skipuð: Karl Kristinsson, Engilbert Runólfsson og Jón Á.Þórisson.
|
|
Föstudagur, 07. apríl 2017 13:40 |
|
Íslandsmótið í Sportskammbyssu fer fram í Egilshöllinni á sunnudaginn.
|
|
Þriðjudagur, 04. apríl 2017 09:11 |
|
PÁSKAMÓT SR í Skeet fer fram laugardaginn 15.apríl og verða skotnir 3 hringir, 75 dúfur. Mótið hefst kl.10:00. Forgjafarkerfi SR verður notað en þar fær skotmaður forgjöf miðað við þann flokk sem hann er í, þ.e. 1.flokkur eina dúfu pr.hring, 2.flokkur tvær, 3.flokkur þrjár og 0.flokkur fjórar. Meistaraflokkur hefur enga forgjöf.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 91 92 93 94 95 96 97 98 99 100 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 94 af 298 |