| Fimmtudagur, 25. júní 2009 11:39 | 
| Tímataflan og riðlaskiptingin er komin hérna vegna mótsins á laugardaginn í skeet. Keppendur eru 30 talsins og er reiknað með að úrslit hefjist kl.15:15 ef engar tafir verða á framkvæmdinni. | 
	| Fimmtudagur, 25. júní 2009 09:41 | 
| Opið verður á SKEET völlum fyrir skráða keppendur á Landsmótinu á laugardaginn milli kl. 16 og 21 á föstudeginum. Lokað er fyrir aðrar æfingar á svæðinu. | 
	| Miðvikudagur, 24. júní 2009 15:29 | 
| Haldið verður Landsmót í Skeet n.k. laugardag á Álfsnesi. Keppt verður í 75 dúfu móti  auk finale og hefst það kl 10:00. Mótinu í Enskum Riffli ( 60 skot liggjandi ) sem halda átti á sama tíma hefur verið frestað ! | 
	| Sunnudagur, 21. júní 2009 14:03 | 
| Á landsmótinu sem haldið var á Álfsnesi í gær í Frjálsri Skammbyssu sigraði Ásgeir Sigurgeirsson úr SR með 546 stig, sem er besta skor sem náðst hefur hérlendis í greininni. Annar varð Guðmundur Kr Gíslason einnig úr SR og Hannes G.Haraldson frá SFK varð þriðji. | 
	| Þriðjudagur, 16. júní 2009 21:03 | 
| Opið verður næsta föstudag fyrir keppendur í Fríbyssu frá kl. 16:00 til kl 21:00. Svæðið er lokað að öðru leiti. |