|
Föstudagur, 01. janúar 2010 15:40 |
|
Um leið og stjórn félagsins óskar félagsmönnum og velunnurum þess farsældar á nýju ári, þakkar stjórnin öllum þeim sem komu að starfinu á síðastliðnu ári. Eins og getið var um í áramótapistli síðustu áramóta, var það stefnan að megin verkefni í starfi félagsins á árinu ætti að vera að koma starfsemini í gang í sem flestum skotgreinum og félagsmenn hvattir til að taka virkan þátt í því starfi. Það má segja að það hafi tekist vonum framar og gamlir og nýjir félagsmenn hafa tekið höndum saman um að koma starfinu í gang. Mikil og vaxandi ástundun hefur verið á haglavöllum félagsins...
|
|
Nánar...
|
|
|
Miðvikudagur, 30. desember 2009 19:47 |
|
Í fyrramálið verða tvö
|
|
Nánar...
|
|
Þriðjudagur, 29. desember 2009 22:30 |
|
Í kvöld var 3.umferð í sænska loftskammbyssumótinu skotin í Egilshöllinni. Ásgeir Sigurgeirsson skaut þar sínum 40 skotum og endaði í 393 stigum en þess má til gamans geta að það skor er jafnt gildandi heimsmeti í kvennaflokki. Þessi árangur er hreint út sagt frábær og gefu vísbendingar um að "Liston" sé í svaka formi. Önnur úrslit verða svo birt hérna síðar.
|
|
Þriðjudagur, 15. desember 2009 10:10 |
|
Fyrsta landsmót tímabilsins í enskum riffli var haldið í Kópavogi á sunnudaginn. Okkar maður, Guðmundur Helgi Christensen sigraði með 577 stig, Arnfinnur Jónsson úr SFK varð annar með 574 stig og í þriðja sæti varð Eyjólfur Óskarsson úr SR með 568 stig.
|
|
Miðvikudagur, 09. desember 2009 22:38 |
|
Rifflanefnd Skotfélags Reykjavíkur heldur skotmót Fimmtudaginn 31.desember á svæði félagsins á Álfsnesi. Vegna takmarkaðs birtutíma þurfa menn að vera tilbúnir að hefja keppni kl 11:30. Keppni ætti að ljúka upp úr kl 14.
|
|
Nánar...
|
|
Laugardagur, 05. desember 2009 22:54 |
|
Meðan félagið hafði aðstöðuna í Leirdal var haldið mót í haglabyssugreininni Skeet á hverju ári. Mótið var kallað ÁRAMÓTIÐ og var haldið á Gamlársdag. Þetta mót var ávallt síðasta íþróttamótið sem haldið var á landinu á hverju ári.
|
|
Nánar...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 271 272 273 274 275 276 277 278 279 280 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 273 af 299 |