| Þriðjudagur, 29. desember 2009 22:30 | 
| Í kvöld var 3.umferð í sænska loftskammbyssumótinu skotin í Egilshöllinni. Ásgeir Sigurgeirsson skaut þar sínum 40 skotum og endaði í 393 stigum en þess má til gamans geta að það skor er jafnt gildandi heimsmeti í kvennaflokki. Þessi árangur er hreint út sagt frábær og gefu vísbendingar um að "Liston" sé í svaka formi. Önnur úrslit verða svo birt hérna síðar. | 
	| Þriðjudagur, 15. desember 2009 10:10 | 
| Fyrsta landsmót tímabilsins í enskum riffli var haldið í Kópavogi á sunnudaginn. Okkar maður, Guðmundur Helgi Christensen sigraði með 577 stig, Arnfinnur Jónsson úr SFK varð annar með 574 stig og í þriðja sæti varð Eyjólfur Óskarsson úr SR með 568 stig. | 
	| Miðvikudagur, 09. desember 2009 22:38 | 
| Rifflanefnd Skotfélags Reykjavíkur heldur skotmót Fimmtudaginn 31.desember á svæði félagsins á Álfsnesi. Vegna takmarkaðs birtutíma þurfa menn að vera tilbúnir að hefja keppni kl 11:30. Keppni ætti að ljúka upp úr kl 14. | 
	| Nánar... | 
	| Laugardagur, 05. desember 2009 22:54 | 
| Meðan félagið hafði aðstöðuna í Leirdal var haldið mót í haglabyssugreininni Skeet á hverju ári. Mótið var kallað ÁRAMÓTIÐ og var haldið á Gamlársdag. Þetta mót var ávallt síðasta íþróttamótið sem haldið var á landinu á hverju ári. | 
	| Nánar... | 
	| Mánudagur, 30. nóvember 2009 19:15 | 
| Félagið er nú komið með síðu á Facebook. Þið getið skoðað síðuna með því að smella á slóðina hér til hægri. |