Íslandsmet hjá Jórunni í morgun Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 27. maí 2018 11:00

jorunnhardarap40.jpgJórunn Harðardóttir formaður félagsins, var að ljúka keppni á nýju Íslandsmeti í loftskammbyssu á Heimsbikarmótinu í München í Þýskalandi. Hún hafnaði í 78.sæti af 122 keppendum, en hún náði 560 stigum (92 93 95 94 93 93). Fyrra met hennar var 557 stig sem hún setti á Reykjavíkurleikunum í byrjun árs. Hún keppir svo ásamt Ásgeiri Sigurgeirssyni í parakeppninni á morgun.

AddThis Social Bookmark Button