Ef einhver hefur haft einhverjar efasemdir um að Skotfélag Reykjavíkur hafi viðurkenningar frá lögreglu til að halda úti skotsvæðum þess á Álfsnesi og í Egilshöll, og eins að félagið geti tekið á móti og þjálfað ungmenni þá látum við hér flakka skjöl til staðfestingar á því. Nú bíðum við bara eftir lokastarfsleyfinu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar til að geta farið að þjóna almenningi á svæðinu á Álfsnesi. Starfsemin í Egilhöll hefst svo uppúr miðjum september en það verður auglýst innan skamms.