|
Mánudagur, 17. ágúst 2026 08:19 |
|
Drög að endurnýjuðu starfsleyfi vegna starfsemi félagsins á Álfsnesi hafa verið birt á vef Reykjavíkurborgar og má skoða þau hérna.Birtingartíminn er til 10.september og má á þeim tíma gera athugasemdir við drögin. Breyting á lögum um starfsleyfi virðast ekki hafa gefið Heilbrigðiseftirliti möguleika á að stytta þennan auglýsingatíma en í nýju lögunum er þeim gert mögulegt að stytta tímann í eina viku ef um endurnýjun án mikilla breytinga á skilyrðum er að ræða. En hvað um það við sjáum þó fram á að geta hafið einhverja starfsemi seinni partinn í september. Tekjutap félagsins er orðið gríðarlegt vegna þessarar lokunar og hafa verið nefndar tölu sem nema milljónatugum. Við ættum þó að geta tekið að okkur verklega þátt skotvopnaprófanna í lok september og tekið við þeim höfuðborgarbúum sem hefðu annars þurft að sækja þau námskeið til annara skotfélaga með tilheyrandi kostnaði.ÂÂÂÂ
|