|
Umsókn félagsins um nýtt starfsleyfi á Álfsnesi liggur enn hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar, HER. Við fengum undanþágu frá Umhverfisstofnun til að geta sinnt bráðnauðsynlegu starfi okkar á Álfsnesi árið 2025, meðan Reykjavíkurborg inni frekari gögn til að uppfylla aukin skilyrði aðallega vegna hljóðvistar á svæðinu.
Í lok ágúst 2025 var unnin mjög vönduð skýrsla af verkfræðistofunni VERKÍS um umbætur á svæðinu og var vandað mjög við hljóðmælingar við bestu aðstæður. Sérstaklega var ákveðið að mæla hæstu toppa hljóðsins með hraðari skotum til að framkalla sem mestan hávaða. Mælt var á riffilvellinum bæði með og án hljóðdeyfis og á haglavellinum var skotið með tvíhleyptri halgabyssu af palli fjögur þannig að hljóð myndi berast sem mest yfir Kollafjörðinn í áttina að þremur hljóðmælum sem þar hafði verið komið fyrir. Í framhaldi var lagður dúkur inní riffilskýlinu til að draga úr hávaða sem skotfólk verður fyrir. Við opnun svæðisins voru reistar miklar manir utan um svæið sem hefur mikil áhrif til minnkunar á hávaða frá svæðinu. Enda sýndu hljóðmælingarnar að hljóðmengun frá svæðinu er ávallt innan leyfilegra marka.
Við látum hér fylgja slóðir á umræddar skýrslur. Eins eru hér slóðir á skýrslu nefndar sem sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins létu vinna um hugsanleg skotsvæði á stór-höfuðborgarsvæðinu. Umsókn félagsins er hér einnig ásamt viðaukum sem við höfum sent HER til styrkingar á umsókn okkar. Við teljum einsýnt að framtíðarstaðsetning skotsvæðisins er á Álfsnesi enda búið að leggja í það verkefni hundruðir milljóna til að gera það sem best úr garði.Â
Nú er svo komið að svæðið verður að opna til að þjóna ýmsum bráðnauðsynlegum verkum einsog þjálfun skotíþróttafólks, æfingum tilvonandi hreindýraskyttna, próftöku vegna hreindýraveiða, veklegri þjálfun tilvonandi byssuleyfishafa fyrir lögreglu, alþjóðlegu mótahaldi í júlí en þá verður hér haldið alþjóðlegt kvennamót í haglabyssugreininni Skeet en hún er jafnframt Ólympíugrein, ásamt hefðbundnum æfingum allra skotleyfishafa á suðversturhorninu en félagið hefur verið opið öllum sem þangað koma og vilja æfa sig, án tillits til félagsaðildar.Â
Iðkendur skotíþrótta eru orðnir langeygir eftir því að borgaryfirvöld taki nú af skarið og sjái til þess að skotsvæðið opni nú þegar. Félagsmenn í Skotfélagi Reykjavíkur eru nú 1,800 talsins en reikna má með að aðsókn og tengsl skotfólks við sína nánustu sé varlega áætluð 8-10 þúsund manns. SKOTREYN er í sömu stöðu í nágrenni við okkur og til skammar fyrir Reykjavíkurborg að vera ekki búið að taka af skarið og sjá til þess að sjálfboðaliða rekin íþróttafélög þurfi ekki að eyða öllum sínum tíma í að berja á hinu opinbera í stað þess að vera að efla íþróttastarf í landinu. Við hvetjum embættismenn og kjörna fulltrúa að einhenda sér í þetta verkefni og klára það fyrir hádegi.
HER Mótvægisaðgerðir sent inn 20.apríl 2026
HER Umsókn um starfsleyfi 2024
HER Greinargerð með umsókn
HER Vatnshlotaskýrsla
Tillögur starfshóps til borgarráðs 2023
3 -Â Skýrsla nefndar um skotsvæði
4 - Mælingar rifflhús
5 - Mælingar haglavelli
|