Zeiss Riffilmót á Riffilvelli SR laugardaginn 27. júlí... Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 24. júlí 2013 20:51

Hlað heldur Zeiss rifflamót kl 11:00 í skotskýlinu á Álfsnesi laugardaginn 27. júlí. Æfingarskot verða leyfð frá kl 10:00 til 10:40. Riffilskýlið verður lokað frá kl 10:00 til amk 14:00 og eða þar til mótinu lýkur. Skotið verður á 200m af borði - tvífótur að framan og engin stuðningur að aftan nema öxl - 20skot. Skráning í mótið hjá Hlað / nánari upplýsingar á www.hlad.is Haglavellir verða opnir eins og venjulega.

AddThis Social Bookmark Button
 
Skráningu á Íslandsmótið í Skeet lýkur í dag!! Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 23. júlí 2013 12:28

Skráningu keppenda á Íslandsmótið í Skeet sem verður haldið hjá SFS í Þorlákshöfn um næstu helgi lýkur í dag. Keppendur okkar þurfa að senda okkur póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í liðsstjórann okkar (Ödda 824 6601) og skrá sig.

AddThis Social Bookmark Button
 
Kjartan Friðriksson sigraði á Sako Ellingsen mótinu í dag... Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 21. júlí 2013 21:53

20130721_sr_rifflamot_ellingsen

Alls tókur 24 keppendur þátt í móti Sako sem Ellingsen hélt í dag. Glæsileg verðlaun voru í boði, þar á meðal Sako Riffill að verðmæti 250þús. fyrir fyrsta sætið. Kjartan Friðirksson sigraði á mótinu með 88stig af 100 mögulegum. Hjörleifur Hilmarsson var í öðru sæti og Fillipus Sigurðsson í því þriðja. Skotið var að 100m og 300m við erfiðar aðstæður í miklum vindi. Nánari upplýsingar um mótið koma síðar á Ellingsen.is

AddThis Social Bookmark Button
 
Sako Rifflakeppni Ellingsen á riffilvelli SR á Álfsnesi... Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 14. júlí 2013 12:56
Sako Rifflakeppni Ellingsen - sunnudaginn 21 Júlí 2013.
Skotið á 100 metrum fríhendis, skotskífa 30cm , 5 skot , skottími 5 min. Skotjakkar, skotvetlingar, ólar eða annar stuðningur ekki leyfður. Skotið á 300 metrum... 
AddThis Social Bookmark Button
Nánar...
 
Ellert endaði með 111 stig og Hákon 114 Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 11. júlí 2013 16:31
Keppninni í skeet í Granada var að ljúka og endaði Ellert Aðalsteinsson í 82.sæti af 101 keppanda. Skorið hjá honum var 111 dúfur, 23 24 22 22 20. Hákon Þ. Svavarsson endaði í 68.sæti með 114 dúfur, 23 23 23 23 22 og náði þar s.k. MQS sem þarf til að eiga möguleika á að komast inná Ólympíuleika.
AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir með 575 stig Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 10. júlí 2013 10:19

Ásgeir lauk keppni í Granada í 23.sæti af 84 keppendum, og kemst ekki í átta manna úrslit. Skorið var fínt, 575 stig (96-97-98-97-93-94). Á sama tíma hófu haglabyssumenn keppni og áttu bæði Ellert 23+24 og Hákon 23+23 fínt start. Þeir klára 3 hringi í dag og svo tvo á morgun.

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 161 162 163 164 165 166 167 168 169 170 Næsta > Síðasta >>

Síða 170 af 296

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing