| 
		
	| Fimmtudagur, 16. desember 2010 09:04 |  
| Ásgeir er að keppa núna í Luxemburg og er keppnin send út beint,talnalega, á heimasíðu keppninnar, http://www.fltas.lu/riac_2010/live/ . Finalinn er svo seinna í dag. Sama fyrirkomulag er svo á morgun og laugardag. Hann var að ljúka undankeppninni í keppni dagsins og er kominn í úrslit. Hann skoraði 577 stig að þessu sinni. Mótið er nokkuð sterkt að þessu sinni. Rússneska landsliðið keppir þarna núna og er Ásgeir nú í 5.sæti á eftir fjórum Rússum. Röð efstu manna breyttist ekki í úrslitum þannig að hann endaði í 5.sæti.  |  | 
	| 
		
							| 
	| Miðvikudagur, 15. desember 2010 20:55 |  
| Á landsmótinu í Staðlaðri skammbyssu í Egilshöllinni í kvöld, sigraði Eiríkur Jónsson með 516 stig, í öðru sæti varð Karl Kristinsson með 509 stig og í því þriðja Kolbeinn Björgvinsson með 488 stig. |  
	| Þriðjudagur, 14. desember 2010 13:09 |  
| Æfingatími v. mótsins er frá kl 21 í kvöld. fyrri riðill hefst kl 18:00   Karl, Kolbeinn, Þórhildur, Jónas
 seinni riðill hefst kl 19:30  Joddi, Gunnar, Björgvin, Eiríkur
 |  
	| Sunnudagur, 12. desember 2010 14:12 |  
| Ásgeir Sigurgeirsson tók þátt í tveimur loftskammbyssukeppnum í Malmö í Svíþjóð í dag. Hann sigraði í þeim báðum, á því fyrra með 584 stig en á því síðara með 580 stig. Frábær árangur hjá honum. Það verður spennandi að sjá hvernig honum gengur í Luxemburg í næstu viku. |  
	| Laugardagur, 11. desember 2010 19:33 |  
| Ásgeir Sigurgeirsson sigraði á landsmótinu í frjálsri skammbyssu með 546 stig á fimmtudaginn. Jórunn vann kvennaflokkinn á 508 stigum. |  
	| Laugardagur, 11. desember 2010 19:31 |  
| Ásgeir Sigurgeirsson hélt utan í gærmorgun til Svíþjóðar. Þar keppir hann á einu móti og heldur svo yfir til Luxemburgar ásamt þjálfara sínum, Ragnari Skanaker, til keppni á hinu þekkta aljþoðlega móti, RIAC. Þar tekur hann þátt í 3 aðskildum keppnum á 3 dögum, 16.17. og 18.desember. Við munum fylgjast náið með framvindu mála. |  |  | 
	| << Fyrsta < Fyrri 241 242 243 244 245 246 247 248 249 250 Næsta > Síðasta >> 
 
 | 
	| Síða 249 af 298 |