Föstudagur, 04. mars 2011 23:24 |
Ásgeir Sigurgeirsson keppir í fyrramálið á Evrópumótinu í Brescia. Keppni hefst kl.08:00 að okkar tíma og 8 manna úrslit kl.13:00. Skorlýsing er send út beint hérna. Einnig sýna ítölsku sjónvarpsrásirnar RAISPORT1 og 2 frá úrslitunum. Heimasíða keppninnar er svo hérna.
|
|
Sunnudagur, 27. febrúar 2011 09:45 |
Á Bikarmeistaramóti STÍ í loftbyssugreinunum, unnu okkar keppnismenn alla titlana. Ásgeir Sigurgeirsson sigraði í karlaflokki og Jórunn Harðardóttir í kvennaflokki í loftskammbyssunni. Í loftriffli sigraði Guðmundur Helgi Christensen og í kvennaflokki Jórunn Harðardóttir. Í liðakeppninni sigraði A-lið okkar og B-liðið varð í 3.sæti. Nánari úrslit hérna og myndir hérna.
|
Föstudagur, 25. febrúar 2011 14:03 |
Keppnisæfing fyrir Bikarmótið kl.19-21 í kvöld
|
Miðvikudagur, 23. febrúar 2011 16:36 |
Riðlaskipting Bikarmóts STÍ í Egilshöllinni á laugardaginn, er komin hérna. ATHUGIÐ að lokað er fyrir almennar æfingar í höllinni þann dag.
|
Þriðjudagur, 22. febrúar 2011 17:15 |
Tvenn félagaskipti hafa verið tilkynnt síðustu daga. Kristína Sigurðardóttir skammbyssuskytta er komin yfir í SR og sama gildir um skeet-skyttuna Stefán Gísla Örlygsson. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin í hópinn.
|
Mánudagur, 21. febrúar 2011 16:36 |
Á laugardaginn fer fram Bikarmót STÍ í Egilshöllinni. Keppt verður í loftskammbyssu og loftriffli. Skráningu lýkur annað kvöld.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 231 232 233 234 235 236 237 238 239 240 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 232 af 286 |