Áramótið í riffli... Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 05. desember 2012 10:20

riffilskyttaRifflanefnd Skotfélags Reykjavíkur heldur skotmót, Áramótið,  mánudaginn 31.desember á svæði félagsins á Álfsnesi. Vegna takmarkaðs birtutíma þurfa menn að vera tilbúnir að hefja keppni kl 11:00. Keppni ætti að ljúka upp úr kl 14. Skráningu á mótið lýkur fimmtudaginn 20.des !

Skotið verður af resti á 200 metra færi á „varmint for score“ skotskífur og ræður stigafjöldi úrslitum. Skotin verða samtals 25 skot.....

AddThis Social Bookmark Button
Nánar...
 
Skráningu í enska riffilinn lýkur í kvöld Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 04. desember 2012 20:37

60sk skyttaSkráningu keppenda á Landsmót STÍ í enskum riffli um næstu helgi, lýkur í kvöld.

AddThis Social Bookmark Button
 
Karl og Jórunn sigruðu í Staðlaðri skammbyssu Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 03. desember 2012 11:16

fp50siluet Karl Kristinsson úr SR sigraði í karlaflokki á Landsmóti STÍ sem haldið var á laugardaginn í Kópavogi. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR. Nánari úrslit eru aðgengileg á heimasíðu STÍ.

 

AddThis Social Bookmark Button
 
Umsagnir við vopnalagafrumvarpið Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 03. desember 2012 11:15

Stjórn félagsins sendi inn athugasemdir við framlagt vopnalagafrumvarp Innanríkisráðherra og má lesa þær hérna. Eins hefur fjöldi athugasemda frá öðrum félögum og stofnunum borist Alþingi vegna málsins og eru þær aðgengilegar á síðu þingsins hérna. ....

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir vann sínar viðureignir Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 02. desember 2012 15:13

Mótunum lokið í Þýskalandi niðurstaðan var að SV Groß und Kleinkaliber tapaði 3-2 í fyrra mótinu og eins í seinna mótinu. Ásgeir Sigurgeirsson vann sínar viðureignir skorið hjá honum í fyrra mótinu var 381 og 387 í seinna mótinu.

AddThis Social Bookmark Button
 
Takmarkaður opnunartími í vetur Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 30. nóvember 2012 21:39

Einsog ávallt síðustu áratugi er starfsemi á útisvæði félagsins takmarkað yfir vetrartímann. Keppnistímabili útigreina er lokið og hefst það starf ekki fyrr en í vor. Við verðum með opið á laugardögum í allan vetur en minnum skotmenn á að í Egilshöllinni er opið í allan vetur.  Við minnum félagsmenn okkar á félaga okkar í nágrannasveitarfélögunum, einsog t.d. í Skotdeild Keflavíkur og í Skotíþróttafélagi Suðurlands ef menn vilja skjóta utan opnunartíma hjá okkur, þó um langan veg sé að fara. Birtu er nú farið að bregða ansi snemma og því virkir dagar birtuskertir og eins eru Sunnudagarnir ekki leyfðir hjá okkur. Hvort við fáum heimild til að nýta Sunnudagana í náinni framtíð er undir Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar komið og ekki tímabært að fjalla um það á þessum vettvangi. 

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 191 192 193 194 195 196 197 198 199 200 Næsta > Síðasta >>

Síða 195 af 299

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing