Úlfar með Íslandsmet á Ísafirði Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 11. október 2026 11:24
ulfar islm 10oktÚlfar Sigurbjarnarson SR bætti Íslandsmet sitt í drengjaflokki í 50 metra Prone á Ísafirði.
Í unglingaflokki var í fyrsta sæti Úlfar Sigurbjarnarson SR á nýju Íslandsmeti 601.5 stig. í öðru sæti var Karen Rós Valsdóttir á 580.1 stigi, einungis 0.1 frá sínu núverandi Íslandsmeti.
Í fyrsta sæti var Jón Þór Sigurðsson SK með 624.4 stig. Í öðru sæti var Valur Richter með 610.7 og þriðji Sigurbjörn Gunnarsson SR með 607.7 stig sem er hans besti árangur.
Úlfar Sigurbjarnarson úr SR setti nýtt Íslandsmet fullorðinna og Íslandsmet unglinga þegar hann náði 562 stigum í 50 m Þrístöðu á Vestfjarðamótinu á Ísafirði.
Hann bætti Íslandsmet fullorðinna sem Guðmundur Helgi Christensen SR setti árið 2022 upp á 553 stig.
Úlfar var því í fyrsta sæti í unglingaflokki með 562 stig.
Valur Richter SÍ var í fyrsta sæti með 527 stig. Aðalheiður Lára úr SSS í öðru sæti með 512 stig og í þriðja sæti Leifur Bremnes SÍ með 508 stig.
AddThis Social Bookmark Button