|
Sunnudagur, 29. mars 2026 16:00 |
|
 Í dag fór fram landsmót Skotíþróttasambands Íslands í þrístöðu í Egilshöll. Úlfar Sigurbjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur átti frábæran dag og setti sitt annað Íslandsmet um helgina — skaut 520 stig og bætti eigið unglingamet um tvö stig. Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar vann opna flokkinn örugglega á persónulegu meti, 541 stigum. Í öðru sæti lenti félagi hans, Leifur Bremnes, með 524 stig og þriðja sætið hlaut Jórunn Harðardóttir úr SR með 521 stig.
|