|
Mánudagur, 13. júní 2016 07:43 |
|
Landsmót Stí var haldið í Þorlákshöfn um helgina. Í karlaflokki vann Örn Valdimarsson SR 114/125 +12 +13 eftir bráðabana við Sigurð Unnar Hauksson SR sem varð annar á 114/125+ 12+13 og þriðji varð Hákon Þ Svavarsson SFS á 117/125 9+ 13. Í kvennaflokki sigraði Snjólaug M Jónsdóttir úr Markviss á 52 /75. Helga Jóhannsdóttir SÍH varð önnur á 47/75 eftir bráðabana við Dagnýju frá SR, Dagný Hinriksdóttir SR þriðja á 47/75 Marinó Eggertsson SÍH sigraði unglingaflokk á sínu besta skori til þessa á 94/125
|
|
|
Föstudagur, 10. júní 2016 21:53 |
|
 Ásgeiri Sigurgeirssyni var boðið að taka þátt í æfingabúðum í Frakklandi sem eru sérstaklega ætlaðar þeim skotmönnum sem þegar hafa tryggt sér kvótapláss á Ólympíleikana í Ríó í sumar. Þó hann hafi ekki enn fengið sæti á þeim og alls ekki öruggt að hann nái þangað þá var honum boðið að vera með í hópi þeirra bestu. Æft er alla daga og jafnframt keppt daglega. Hægt er að fylgjast með skorinu á úrslitasíðu SIUS hérna.
|
|
Föstudagur, 10. júní 2016 21:44 |
|
Landsmót í haglabyssugreininni Skeet fer fram á skotsvæði Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn um helgina.
|
|
Föstudagur, 10. júní 2016 08:24 |
|
Norrænu sjúkrahúsleikarnir verða haldnir í Egilshöllinni í fyrramálið. Starfsmenn sjúkrahúsa Norðurlandanna etja þar kappi með loftriffli.
|
|
Laugardagur, 04. júní 2016 21:28 |
|
 Í dag var unnið að undirbúningi Compak Sporting vallarins en hann verður settur upp inní velli 1. Hann mun samanstanda af 6 vélum sem kasta frá mismunandi sjónarhornumÂÂ samkvæmt reglum FITASC. FITASC eru alþjóðasamtök haglabyssuskotgreina sem standa utan Ólympíugreinanna. STÍ, Skotíþróttasamband Íslands, er að ganga frá inngöngu í þau samtök og munum við í framhaldi geta tekið þátt í öllum stórmótum á vegum þeirra samtaka.
|
|
Föstudagur, 27. maí 2016 22:57 |
|
Landsmót í Skeet fer fram á Álfsnesi á morgun laugardag. Keppnin hefst kl.10:00.

|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 105 af 300 |