Föstudagur, 28. maí 2021 08:55 |
Við ætlum að reyna opnanir frá og með 1.júní kl. 12-19, þriðjudaga og fimmtudaga á Álfsnesi. Auðvitað verður síðan opið á hefðbundnum tíma á laugardögum kl.10-16. Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér þennan opnunartíma einsog kostur er.Â
|
|
Föstudagur, 28. maí 2021 08:48 |
Aðalfundur félagsins var haldinn í Egilshöllinni í kvöld. Megnið af fundartímanum fór í umræður um útisvæði félagsins á Álfsnesi. Ársreikningar voru lagðir fram og samþykktir samhljóða. Stjórnin var endurkjörinn samkvæmt lögum félagsins og er nú skipuð þannig að Jórunn Harðardóttir er formaður, Arnbergur Þorvaldsson varaformaður, Guðmundur Kr. Gíslason gjaldkeri, Kjartan Friðriksson ritari og meðstjórnandi er Örn Valdimarsson. Varamenn eru Kjartan Örn Kjartansson og Sigfús Tryggvi Blumenstein.
|
Fimmtudagur, 27. maí 2021 10:26 |
Hér er smá innlegg í umræðuna um mikla og stöðuga hávaðamengun frá starfsemi SR á Álfsnesi. Umrædd hávaðamengun er talin það mikil að hún flæmi fuglalíf í burtu frá svæðum hinum megin við Kollafjörð. Ef svo er hvernig má það vera að við erum í vandræðum vegna ásóknar fugla í að verpa á skotvöllum okkar eins og sést á myndinni í viðhenginu? Á SKEET-velli nr. 2 hefur tjaldapar gert sér hreiður og var verpt í það á tímabilinu 14:00 til 15:00 síðastliðinn mánudag. Það var í miðjum opnunartíma þess dags.
|
Miðvikudagur, 26. maí 2021 08:02 |
Evrópumeistaramótið í Ólympísku skotgreinunum er nú haldið í Osijek í Króatíu. Það hefur vakið athygli hve vellirnir þar eru nálægt byggð og í góðri sátt við alla íbúa. Hér í Reykjavík eru hins vegar sjónarmið örfárra látin ráða því hvernig íþróttastarf tengt skotfimi fer fram og endalaus áróður sem borgaryfirvöld virðast ætla að kyngja látin ráða för.Â
|
Miðvikudagur, 26. maí 2021 07:57 |
Af www.sti.is:
Íslensku keppendurnir hófu keppni í morgun á EM í Króatíu. Í haglabyssugreininni Skeet eru okkar keppendur Hákon Þ. Svavarsson, Pétur T. Gunnarsson, Stefán G. Örlygsson, Helga Jóhannsdóttir og Dagný H. Hinriksdóttir. Í riffilgreinunum 50m og 300m liggjandi keppir Jón Þ. Sigurðsson fyrir okkur og byrjar hann keppni á morgun. Einnig voru skráð í loftskammbyssu þau Ásgeir Sigurgeirsson og Jórunn Harðardóttir en þau urðu að hætta við þátttöku.
Dagskráin er svona:
Skeet karla 26.-27.maí
Skeet kvenna 26.-27.maí
50m riffill 27.maí
Skeet parakeppni 28.maí
Skeet liðakeppni karla 29.maí
300m riffill 2.júní
|
Föstudagur, 21. maí 2021 09:42 |
Á laugardaginn verður prófdómari vegna hreindýraprófanna á staðnum frá kl.12 til 16. Bara mæta og klára. Hérna færðu allar upplýsingar um próftökuna á heimasíðu UST.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 38 af 296 |