| Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 14:18 | 
| Athugið að lokað er á haglavöllum félagsins á laugardag vegna Íslandsmóts í Skeet. | 
	| Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 14:17 | 
| Mótagjöldin um helgina er kr 8.000 í karlaflokki og kr 5.000 í kvennaflokki. Final í karlaflokki er á sunnudeginum og í kvennaflokki á laugardeginum. | 
	| Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 12:04 | 
| Um helgina fer fram Íslandsmótið í haglabyssu á völlum félagsins á Álfsnesi. Vegna þess hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar samþykkt undanþágu til okkur um rýmkaðan opnunartíma á sunnudeginum kl.10 til 18:00.  | 
	| Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 10:28 | 
| Um helgina verður haldið Íslandsmót í Skeet á Álfsnesi. Mótið hefst kl 10:00 laugardaginn og sunnudaginn á sama tíma. Opið verður fyrir keppendur til æfinga á föstudag fyrir mót frá kl 16 til 21. Unnið verður úr öllum skráningum keppenda daginn fyrir mót og riðlaskipting sett hér inn í kjölfarið. Nánari upplýsingar á móttstað í dag og föstudag. | 
	| Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 21:14 | 
| Þeir sem ætluðu að taka þátt í námskeiðinu um hreindýraveiðar miðvikudaginn 11. ágúst eru vinsamlega beðnir að athuga að námskeiðið frestast af óviðráðanlegum ástæðum um eina viku, eða til 18. ágúst. Námskeiðið verður haldið á sama tíma þann 18. og eru þeir sem ætluðu að taka þátt þann 11. vinsamlega beðnir að skrá sig að nýju. |