Ásgeir keppir í fyrramálið Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 23. júlí 2021 08:49
asgsig01 005Ásgeir Sigurgeirsson keppir í loftskammbyssu á Ólympíuleikunum í Tokyo á morgun, laugardag. Undankeppnin hefst kl. 04:00 að íslenskum tíma (13:00-14:15 á Tokyo tíma) Úrslitin hefjast svo kl. 06:30 (15:30 á Tokyo tíma). RÚV sýnir beint frá úrslitunum og hefst útsending RÚV kl. 06:20 https://www.ruv.is/vidburdir/ol-2020-skotfimi-karla
Í undankeppninni er skotið 60 skotum á skotmark á 10 metra færi. Átta efstu komast í úrslit þar sem skotið er með útsláttarfyrirkomulagi þannig að eftir 12 skot fellur áttundi maður út, eftir 14 skot fellur sjöundi út og svo koll af kolli þar til gullinu er landað. Nánar á www.sti.is
AddThis Social Bookmark Button