Undirskriftarlistar afhentir borgarstjóra í dag Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 02. maí 2022 16:13

srafhlista2mai2022aBorgarstjóra afhentur undirskriftarlisti þar sem skorað er á borgryfirvöld að opna skotsvæðin á Álfsnesi nú þegar. 2,703 skráðu sig á listann með rafrænum skilríkjum. Dagný Huld Hinriksdóttir stóð fyrir söfnuninni ásamt eiginmanni sínum, Guðna Þorra Helgasyni.  Við listanum tóku þau Líf Magneudóttir, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Dagur B. Eggertsson. Einnig voru mættir tveir fulltrúar skotfélaganna þeir Guðmundur Kr. Gíslason úr Skotfélagi Reykjavíkur og Þórir Ingi Friðriksson úr Skotveiðifélagi Reykjavíkur og nágrennis. Listarnir voru afhentir við Skothúsveg þar sem félagið hóf starfsemi sína og var formlega stofnað þann 2.júní 1867  !

AddThis Social Bookmark Button