Úrslit landsmótsins í skeet um helgina Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 12. júní 2017 08:17

2017skeet11jun2017skeet11juni123ka2017skeet11juni123kv2017skeet11junilidka2017skeet11junilidkvLandsmót STÍ í haglabyssugreininni Skeet fór fram á skotvöllum Skotfélags Reykjavíkur um helgina. Í karlaflokki sigraði Stefán G.Örlyggson úr Skotfélagi Akraness með (115/25), annar varð Örn Valdimarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur með (110/25) og í þriðja sæti Jakob Þ.Leifsson úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar með (99/125). Í liðakeppni karla sigraði sveit Skotfélags Reykjavíkur með 311 stig en sveitin var skipuð Erni Valdimarssyni, Guðmundi Pálssyni og Kjartani Erni Kjartanssyni. Í öðru sæti varð sveit Skotfélags Akraness með 289 stig, skipuð Stefáni G.Örlygssyni, Ólafi S.Ólafssyni og Birni G. Hilmarssyni. Í þriðja sæti hafnaði svo sveit Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar með 279 stig, skipuð Jakobi Þ.Leifssyni, Sigurði J.Sigurðssyni og Aðalsteini Svavarssyni. Kvennakeppninni lauk á laugardeginum með sigri Helgu Jóhannsdóttur úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjaðar með (55 stig), önnur varð Þórey I.Helgadóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með (36 stig) og í 3ja sæti Dagný H.Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með (40 stig). Aðeins ein kvennasveit var skráð til leiks, Skotfélags Reykjavíkur, en hún var skipuð ásamt þeim Dagnýu og Þóreyu, Evu Ó.Skaftadóttur með 107 stig.

AddThis Social Bookmark Button