BR50 mót 4.sept Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 30. ágúst 2013 12:13

BR50 mót verður haldið MIÐVIKUDAGINN 4. sept nk. á Álfsnesi.
Fyrirkomulag er með þeim hætti að skotin eru 25 stk skot á keppnisskífu af 50 metra færi, ásamt ótakmörkuðum fjölda af æfingarskotum á sömu skífu.  Athugið að skotið er með 22. Long Rifle eingöngu á 50 metra færi. BR50 stendur fyrir Benchrest fyrir cal. 22LR á 50metra færi.  Öllum er frjáls þátttaka og er sama keppnisgjald fyrir innanfélagsmenn og þá sem ekki eru í félaginu - verið velkomin þið sem eigið 22 riffla !

Ath - keppt er samkvæmt Enskum Reglunum í BR50. Mótið fer fram á tímabilinu kl:17—20. Hefur hver skotmaður 45mín......

..... til að ljúka keppni, frá því að hann skráir sig í afgreiðslu. Sækja skal skífur og skila aftur í afgreiðslu. Staðan mótsins verður uppfærð jafnóðum og skor berast á skjá
í afgreiðslu. Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum:

Sporter= 0 - 3,855 kg

Light Varimint= 3,855 - 4,762 kg

Heavy Varimnt= 4,762 - 6,8 kg.

Vigt á staðnum.

Ath. það má taka þátt í öllum þyngdar flokkum kjósi keppendur að gera það. Leyfilegt er að hafa bæði fram og afturrest ásamt öðrum hefðbundnum BR búnaði.

Keppnisgjald er lúguleiga + skotskífa 100 kr.


Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum Álfsnesi.

Kveðja, 22-nefndin

AddThis Social Bookmark Button