Breyting á aðalskipulagi komin í auglýsingu Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 12. október 2023 15:23

sr alfsnesDrög að aðalskipulagbreytingu er varðar skotíþróttasvæði á Álfsnesi, sbr. áður kynnt verkefnislýsing, eru nú til kynningar og umsagnar. Í drögunum er sett fram tillaga að skilgreiningu íþróttasvæðis á Álfsnesi, þar sem núverandi skotæfingasvæði eru til staðar í dag. Gert er ráð fyrir að um tímabundna landnotkunarheimild sé að ræða og verði heimilt að endurnýja starfsleyfi til félaga á svæðinu til ársloka 2028. Stefna um landnotkun á svæðinu verður tekin til endurskoðunar innan fjögurra ára og þá á grundvelli niðurstaðna um staðarval skotæfingasvæða til lengri framtíðar litið. Með vísan til 2.  mgr. 30. gr. skipulagslaga eru umrædd gögn lögð fram til kynningar og umsagnar.

Drögin verða til kynningar í skipulagsgáttinni, samráðsvettvangi um skipulagsmál og mat á umhverfisáhrifum, sjá www.skipulagsgatt.is Sjá einnig meðfylgjandi skjal.

Óskað er eftir því að athugasemdum verði komið á framfæri á þeim vettvangi fyrir 2. nóvember nk. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ).

Umsókn um endurnýjað starfsleyfi getum við ekki sent inn fyrr en ofangreind breyting tekur gildi. Þetta gæti þýtt opnun svæðisins í febrúar-mars ef allt gengur eftir.

AddThis Social Bookmark Button