Skotíþróttafólk ársins 2017 Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 22. desember 2017 09:49

Skotíþróttasamband Íslands hefur valið eftirtalda sem Skotíþróttamenn ársins 2017 :

asgeir 2013 free  017Skotíþróttakarl Ársins er: Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur

Ásgeir Sigurgeirsson (f.1985) er landsliðsmaður í Loftskammbyssu og Frjálsri skammbyssu. Ásgeir vann öll mót sem hann tók þátt í hérlendis en keppti auk þess víða erlendis. Hann er ríkjandi Íslandsmeistari í báðum sínum greinum, Frjálsri skammbyssu og Loft skammbyssu.

Hann komst í úrslit á Evrópumeistaramótinu í Maribor í Slóveníu og hafnaði þar í 7.sæti í loftskammbyssu. Einnig lenti hann í 10.sæti í blandaðri liðakeppni ásamt Jórunni Harðardóttur. Smáþjóðaleikunum í San Marinó vann hann gullið. Hann varð í 22.sæti á Heimsbikarmótinu í Munchen og í 32.sæti á Evrópumeistaramótinu í Bakú í Azerbaijan í Frjálsri skammbyssu.

 

 

Ásgeir keppir með liði sínu SGi Ludwigsburg í Þýsku Bundesligunni nokkrar helgar yfir vetrartímann. Hann er einn fárra erlendra keppenda í deildinni en einungis bestu skotmennirnir komast að hjá þýsku liðunum. Lið hans er í efsta sæti suðurdeildarinnar og hefur tryggt sér sæti í úrslitum keppninnar sem fara fram í byrjun næsta árs.

Ásgeir er sem stendur í 54.sæti á heimslistanum en hann fór þar hæst í 20.sæti á árinu. Hann er í 16.sæti á Evrópulistanum en þar fór hann hæst í 13.sæti á árinu.

jorunnhardarap40.jpgSkotíþróttakona Ársins er: Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur

Jórunn Harðardóttir (f.1968) er landsliðskona í riffli og skammbyssu.

Jórunn varð Íslandsmeistari í Loftriffli og í Þrístöðu riffli. Hún varð í 61.sæti á Evrópumeistaramótinu í Slóveníu og í 10.sæti í blandaðri liðakeppni ásamt Ásgeiri Sigurgeirtssyni. Hún varð í 83.sæti á Heimsbikarmótinu í Þýskalandi.

Jórunn er sem stendur í 115.sæti á Heimslistanum og í 102.sæti á Evrópulistanum.

AddThis Social Bookmark Button