Skotmaður í bann Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 17. október 2013 11:16

Á móti sem haldið var 2.október á Álfsnesi, braut einn þátttakandinn öryggisreglur okkar. Viðkomandi hunsaði ítrekuð tilmæli skotstjóra og hélt áfram að skjóta eftir að rauða ljósið var kveikt og sírenan sett í gang. Hann játaði skýlaust brot sitt og hefur stjórn félagsins úrskurðað viðkomandi í 1 árs bann við æfingum og keppni á svæðum félagsins á Álfsnesi og í Egilshöll. 

AddThis Social Bookmark Button