Smáþjóðaleikarnir í Luxemburg hefjast á morgun Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 26. maí 2013 09:14

gsse2013.jpgSmáþjóðaleikarnir í Luxemburg hefjast á morgun. Við eigum flesta keppendur í skotgreinunum að þessu sinni en þau eru í loftriffli, Guðmundur Helgi Christensen, Jórunn Harðardóttir og Írisi Evu Einarsdóttur. Í loftskammbyssu þau Ásgeir Sigurgeirsson, Kristínu Sigurðardóttur og Jórunni Harðardóttur. Einnig er í hópnum Thomas Viderö úr Skotfélagi Kópavogs. Fararstjóri hópsins er Halldór Axelsson og liðsstjóri Sigurgeir Arnþórsson. Keppni í loftriffli fer fram á miðvikudaginn 29.maí bæði í karla-og kvennaflokki. Í loftskammbyssu er keppt föstudaginn 31.maí einnig í bæði kvenna-og karlaflokki. Ekki er keppt í Skeet að þessu sinni. /gkg

AddThis Social Bookmark Button