|
|
|
Mánudagur, 17. ágúst 2026 08:19 |
|
Drög að endurnýjuðu starfsleyfi vegna starfsemi félagsins á Álfsnesi hafa verið birt á vef Reykjavíkurborgar og má skoða þau hérna.Birtingartíminn er til 10.september og má á þeim tíma gera athugasemdir við drögin. Breyting á lögum um starfsleyfi virðast ekki hafa gefið Heilbrigðiseftirliti möguleika á að stytta þennan auglýsingatíma en í nýju lögunum er þeim gert mögulegt að stytta tímann í eina viku ef um endurnýjun án mikilla breytinga á skilyrðum er að ræða. En hvað um það við sjáum þó fram á að geta hafið einhverja starfsemi seinni partinn í september. Tekjutap félagsins er orðið gríðarlegt vegna þessarar lokunar og hafa verið nefndar tölu sem nema milljónatugum. Við ættum þó að geta tekið að okkur verklega þátt skotvopnaprófanna í lok september og tekið við þeim höfuðborgarbúum sem hefðu annars þurft að sækja þau námskeið til annara skotfélaga með tilheyrandi kostnaði.ÂÂÂÂ
|
|
Þriðjudagur, 02. júní 2026 19:04 |
|
Félagið okkar er 159 ára í dag, stofnað 2.júní 1867 !!Â
Hérna er fróðleikur um söguna
|
|
Miðvikudagur, 27. maí 2026 15:28 |
Minnum félagsmenn á sumarþjálfaranámið í þjálfaramenntun ÍSÍ en hægt er að taka sérgreinahluta hjá ISSF - International Shooting Sport Federation https://www.issf-sports.org/academy Félagið styrkir þá sem mennta sig til þjálfunar hjá félaginu.
Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 8. júní næstkomandi.
Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.Skráning:Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka.Nýir notendur í Abler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi.“ Upplýsingar um verð er að finna þarna við skráningu í Abler.Allar nánari upplýsingar veitir:Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviðið ÍSÍ,ÂÂ ÂÂ Sími; 514-4000 / 863-1399Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
Sunnudagur, 10. maí 2026 20:09 |
|
Landsmót í Compak Sporting fór fram um helgina á svæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar. Skotnar voru 200 dúfur 125 í gær laugardag og 75 í dag, Skotfélag Reykjavíkur átti 5 keppendur á mótinu. Jóhann Ævarsson frá Skotfélagi Akureyrar sigraði á 180 dúfum, Jón Valgeirsson frá Skotfélagi Reykjavikur og Theodór Þórólfsson frá Skotfélagi Akureyrar voru jafnir á 179 dúfum en Jón hafði betur í shoot off og tók annað sætið og Theodór endaði 3. Fjögur lið voru skráð til keppni og hafnaði sveit Skotfélags Akureyrar í 1 sæti á 527, en hana skipaði Jóhann Ævarsson, Theodór Þórólfsson og Jónmundur Guðmarsson. Sveit Skotfélags Reykjavíkur var önnur á 506 dúfum en hana skipaði Jón Valgeirsson, Þorri Helgason og Dagný H.Hinriksdóttir. Í þriðja sæti var svo B sveit Skotíþróttafélags Hafnafjarða á 480 dúfum, en hana skipaði Ásbjörn Sírnir Arnarsson, Timo Salsola og Bæring Ágústson. Í unglingaflokki sigraði Hergill Henning Kristinsson úr Skotíþróttafélagi Hafnafjarðar á 151 dúfu. Myndir frá mótinu á Facebook síðunni
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 303 |